Sex vinsælar ilmkjarnaolíur
Án efa er lavender vinsælasta ilmkjarnaolían. Lavender er mjög öflug alhliða ilmkjarnaolía og segja má að hún sé góð fyrir öll líkamskerfin. Og svona allra meina bót úr heimi ilmkjarnaolíanna. Á húð er hún sótthreinsandi, sveppaeyðandi, bólgueyðandi og róandi. Hún örvar endurnýjun fruma og er mjög græðandi. Notuð á allar húðgerðir, bólur, exem, psoriasis, kláða, sveppasýkingar, sár, brunasár, sólbruna o.fl. Lavender er taugaróandi og hvetur til jafnvægis í tilfinningum. Hún er mjög góð við eirðarleysi, kvíða, reiði, pirringi, skapsveiflum, streitu, svefnleysi og taugaspennu. Einnig góð gegn þunglyndi.
Lavender kemur jafnvægi á hormónastarfsemi og er góð við fyrirtíðaspennu, óreglulegum blæðingum og tíðaverkjum. Hún hraðar barnsfæðingu og stillir sársauka. Lavender eflir ónæmiskerfið og er fyrirbyggjandi gegn sýkingum. Hún er einnig góð við ýmsum sýkingum og slími í öndunarfærum og róar og auðveldar öndun. Notuð gegn æðahnútum, hjartsláttartruflunum og er örvandi fyrir sogæðakerfið (vinnur gegn vökvasöfnun og auðveldar útskilnað eiturefna). Lavender er ein besta olían fyrir ungbörn og er mikið notuð gegn bleiubruna, magakrampa, pirringi, hósta og í ungbarnanudd. Lavender hjálpar til við að ná jafnvægi, við streitu, svefnleysi og þunglyndi. Ilmurinn er mildur og þægilegur.
Lavender er góð gegn; bruna, sólbruna, þurrkablettum, exemi og unglingabólum. Hún er róandi, og virkar gegn kvíða, þunglyndi, svefnleysi, hormónaójafnvægi, mígreni, höfuðverkjum og meltingartruflunum, s.s. niðurgangi.
Tea tree olían er ein af þessum sex vinsælu ilmkjarnaolíum þrátt fyrir að lykta ekki vel. Tea tree er mjög sóttheinsandi, bakteríueyðandi og sveppaeyðandi. Lykteyðandi almennt og græðandi á húð. Þar sem hún er sótthreinsandi er hún mjög góð gegn bólum, fílapenslum, kýlum, frunsum, sveppasýkingum, líkþornum, skordýrabitum, exemi, útbrotum, psoriasis og vörtum. Græðir sár og brunasár og er notuð á sólbruna. Mjög góð á feita húð. Gott að nota eftir rakstur og vaxmeðferðir. Drepur lýs og er því þarfleg árlega á lúsafaralds tímanum. Góð við munnangri, tannholdsbólgu og þrusku í munni, má setja út í vatn og skola munninn með blöndunni. Sótthreinsandi, hóstastillandi og slímlosandi fyrir öndunarfæri. Mjög góð við stíflum í ennisholum og berkjum. Einnig góð við frjókornaofnæmi, inflúensu, veirusýkingum, bronkítis og hálsbólgu. Örvar ónæmiskerfið og er fyrirbyggjandi gegn sýkingum. Góð við sveppasýkingu í leggöngum, útferð og kláða.
Ein af vinsælu olíunum koma frá mint fjölskyldunni. Vafalaust er peppermint mest selda og mest notaða olían í þessari fjölskyldu.Peppermint er verk- og vindeyðandi, krampaeyðandi og örvar meltingu. Góð við hvers kyns meltingarvandamálum, s.s. niðurgangi, meltingartruflunum, uppþembu, ógleði og farveiki. Hreinsar og sótthreinsar öndunarfæri og losar stíflur. Einfalt að lykta beint úr flöskunni. Góð við ýmsum öndunarfæravandamálum, s.s. ennis- og kinnholubólgu, bronkítis, kvefi, hálsbólgu og inflúensu. Örvar blóðrás og sogæðakerfi. Auðveldar útskilnað eiturefna og vinnur gegn vökvasöfnun. Kælandi á húð og er góð við bólum, fílapenslum og sveppasýkingum. Andlega örvandi og góð við þunglyndi og andlegri þreytu. Eflir minni og einbeitingu. Góð við höfuðverk og migrene – þá er gott að bera á gagnaugun. Skordýrafæla og sá tími fer í hönd.
Jasmine bara nafnið er umvafið dulúð. Algengasta notkun olíunnar er gegn þunglyndi (einnig fæðingarþunglyndi), kvíða, andlegri þreytu og streitutengdum vandamálum. Einnig mjög góð við hvers kyns tilfinningavandamálum. Veitir gleði og bjartsýni. Notuð gegn svefnleysi. Góð við fyrirtíðaspennu og tíðaverkjum. Mjög góð í barnsfæðingu (styrkir samdrætti pg léttir á sársauka). Mjög góð við kynkulda og getuleysi. Góð á þurra og viðkvæma húð.
Chamomile er efst á lista yfir róandi/slakandi olíur. Þeir sem þola illa lyktina af lavender halla sér að Chamomille. Chamomile er mjög bólgueyðandi og græðandi á húð. Olían inniheldur efnið chamazulene sem myndast í eimingarferlinu og er mjög bólgueyðandi. Góð gegn hvers kyns útbrotum, sárum, exemi, psoriasis, kláða, roða, brunasárum og örum. Einnig góð gegn bólum og rósaroða. Bólgueyðandi eiginleikar Chamomile blue nýtast einnig á æðahnúta, liðagigt, vöðvabólgu og tognun. Lavender eykur bólgueyðandi virkni Chamomile blue því er gott að setja lavender með í blöndur. Mjög græðandi og róandi á húð. Einnig bólgueyðandi, sótthreinsandi og sveppaeyðandi. Mjög góð við sýkingum í húð og er notuð gegn exemi, háræðasliti, útbrotum, sólbruna og hvers kyns sárum. Sérlega góð fyrir ungbörn. Róandi fyrir taugakerfið og góð gegn svefnleysi, streitu, kvíða, pirringi og þunglyndi. Góð við mígrene og höfuðverk. Bólgueyðandi og verkjastillandi fyrir stoðkerfið og notuð gegn verkjum og vöðvakrömpum. Krampaeyðandi fyrir meltingarkerfið og góð gegn hvers kyns meltingarvandamálum. Mikið notuð við magakrömpum ungbarna (magi nuddaður réttsælis). Góð gegn sársaukafullum blæðingum kvenna þar sem hún er bólgueyðandi og slakandi. Einnig góð gegn fyrirtíðaspennu.
Rose ilmkjarnaolía er oft vanmetin eða kannski er hún bara of dýr. Rósin er mild - því góð til að byrja ferilinn í ilmkjarnaolíum. Rósin er taugaróandi og kemur jafnvægi á andlega líðan. Mjög góð við svefnleysi, þunglyndi, depurð, sorg, reiði, gremju, kvíða, taugaspennu og streitutengdum vandamálum. Örvar einbeitingu og stuðlar að vellíðan sem er alls ekki slæmt öll viljum við vera í vellíðunarástandi. Á húð er Rose sótthreinsandi, herpandi, græðandi og róandi. Ég nota hana mikið í nuddolíublöndur. Hún hentar öllum húðgerðum og er góð á bólgur, ör, háræðaslit, bólur, frunsur og exem. Mjög góð gegn öldrunarbreytingum í húð, þrota og hrukkum. Afar góð við hvers kyns kvennavandamálum. Rose kemur jafnvægi á óreglulegar blæðingar og stillir tíðaverki. Hún er góð við útferð, fyrirtíðaspennu og einkennum tíðahvarfa. Mjög góð í barnsfæðingu og gegn fæðingarþunglyndi. Vinnur gegn kynkulda. Styrkireinnig ónæmiskerfið. Hefur róandi áhrif á magann og er því góð við ógleði og uppköstum
Að mestu tekið af vefnum hennar Rúnu á Palmarosa.is